top of page

Íslenskt timbur í mannvirki

Þessi síða er í vinnslu

Íslenskt timbur er ört vaxandi valkostur í mannvirkjagerð, enda stækka skógar landsins hratt og skapa nýja möguleika í sjálfbærri nýtingu staðbundinna auðlinda. Búist er við að CE-vottun fyrir íslenskt timbur komi árið 2025, sem mun staðfesta að það uppfylli evrópska öryggisstaðla. Á sama tíma er unnið að FSC-vottun, sem styrkir notkun þess enn frekar í byggingariðnaði.

Fram að fullri CE-vottun býðst þeim sem hyggjast nota íslenskt timbur fyror burðarvirki mannvirkja að leita til Eiríks Þorsteinssonar hjá Trétækniráðgjöf slf., sem getur aðstoðað við að tryggja leyfi og fylgiskjöl fyrir notkun timbursins.

Hér að neðan má finna grunnupplýsingar um burðarvið og klæðningar. Með tímanum munu bætast við upplýsingar og efni, eftir því sem verkefnið þróast.

inject-blog-service_1728327646968.png

Burðarviður

ösp klæðning.jpg

Utanhúss klæðning

inject-blog-service_1728327647329.png

Annað timbur

Burðarviður

Burðarviður

Til að nota íslenskt timbur í burðarvirki mannvirkja þarf CE-vottun, sem er í vinnslu og áætlað er að verði tilbúin á næsta ári. Þar til vottunin verður staðfest, býðst þeim sem hyggjast nýta íslenskt timbur að leita til Eiríks Þorsteinssonar hjá Trétækniráðgjöf slf., sem getur aðstoðað við að útvega nauðsynleg leyfi og fylgiskjöl fyrir notkun timbursins.

Logo-an-veffangs-Tret-hvitt-graenn-scaled-170x64.jpg

Greni hefur verið aðallega notað í burðarvirki á Íslandi, en einnig hefur reynst vel að nota ösp, sem er ríkulega til staðar á landinu og kallar oft á grisjun. Þetta opnar möguleika á aukinni nýtingu aspinnar i burðarvið.

Á öllum eldri skógræktarsvæðum landsins má finna tré sem henta í burðarvirki. Hins vegar eru ákveðnar takmarkanir í viðarvinnslu, sérstaklega þegar kemur að hámarkslengdum burðarviðar. Ekki allar viðarvinnslur á landinu bjóða upp á burðarvið, en þær sem það gera geta almennt framleitt timbur í allt að 4 metra lengd. Vissar viðarvinnslur hafa burðarvið í lengd allt upp í 5-7 metra, þó þetta sé háð vinnslugetu og aðstæðum hverrar stöðvar.

Við hönnun mannvirkja er mikilvægt að taka tillit til þessara stærðartakmarkana ef ætlunin er að nota íslenskan burðarvið og hafa samband við viðarvinnslur þegar þarf sérstakar stærðir.

Þar sem íslensk viðarvinnsla er að mestu leyti sérpöntunarvinnsla, er mikilvægt að panta efni með fyrirvara, helst þegar hönnunargögn liggja fyrir. Oft þarf að panta efni frá fleiri en einni viðarvinnslu vegna staðbundinna aðgangs- og vinnslutakmarkana og mismunandi aðgangs að tegundum skóglendis.

Klæðning

Utanhússklæðning

Lerki_Klæðning_.jpg

Lerki

- Hentar afar vel í klæðningu
- Mikið til fyrir austan og norðan
- Sterkt
- Má nota viðarvörn en þarf ekki
- Gránar fallega með árunum ef ekki er notuð viðarvörn. 
- Gulnar ekki
- Þykktir 20 - 40 mm
- Breidd 40 - 150 mm

Greni klæðning.jpg

Greni

- Hentar afar vel í klæðningu
- Gott aðgengi um allt land
- Sterkt
- Á ekki til að vinda sig.

- Þarf viðarvörn því annars gulnar
- Því þynnri því betri því þá þornar hún á milli sem eykur endingu.
- Þykktir um 19 - 30 mm
- Breidd 100 - 200 mm

ösp klæðning.jpg

Ösp

- Vel reynst sem utanhúss klæðning en ekki mikil reynsla komin á það. 
- Gott aðgengi um allt land

- Sterkt
- Létt og Mjúkt efni
- Þarf viðarvörn því annars gulnar
- Getur haft fallegan lit í kjarna
.
- Þykktir um 19 - 30 mm
- Breidd 100 - 200 mm

- H
entar vel sem innanhúsklæðning í sauna og baðstaði, leiðir ílla hita. 

Annað timbur

Annað timbur

Undir þessum hluta má finna upplýsingar um annað timbur sem ekki fellur undir burðarvið og klæðningar. Við vinnslu heimasíðunnar mun bætast við þennan flokk og fleiri tengda flokka eftir því sem verkefnið þróast. Viðarvinnslur á Íslandi hafa unnið fjölbreytt verkefni með mismunandi tegundir timburs, og í hlutanum Verkefni má sjá myndir af ýmsum framkvæmdum. Upplýsingar um tengiliði og þjónustu viðarvinnsla er að finna í hlutanum Viðarvinnslur.

Varðandi efnivið í mannvirki geta viðarvinnslur framleitt fjölbreytt efni, og við mælum með að hafa beint samband til að fá nánari upplýsingar um möguleika og sérhæfða framleiðslu.

Timburefni sem mögulegt er að framleiða:

- Innahúsklæðningar

- Timburbita fyrir innanhúsveggi

- Parket
- Lotunarlista og lagnalista
- Borðplötur
- Pallaefni

bottom of page